Velkomin

Þetta er heimasíða Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ.

Framsóknarflokkurinn er íslenskur frjálslyndur félagshyggjuflokkur.

Stefnumál

Stefnuskrá Framsóknar

Hlekkir

Frambjóðendurnir
Greinar
Stjórnir félagsins
Framsókn í Reykjanesbæ

Við erum á Facebook!
Fleiri hlekkir

Í aðdraganda kosninga

6. apríl
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst. Upplýsingar hér.
8. maí
Viðmiðunardagur kjörskrár. Framboðsfrestur rennur út kl. 12 á hádegi.
19. maí
Kjörskrá skal lögð fram í síðasta lagi þennan dag og skal framlagning hennar auglýst fyrir þann tíma.
29. maí
Kjördagur.

Flickr

www.flickr.com
3. 5. 2011

Flutningur Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja - skakkar forsendur í hagkvæmniathugun

Ályktun Framsóknar í Reykjanesbæ

Framsóknarfélag Reykjanesbæjar leggur áherslu á að gerð verði ítarlegri hagkvæmnisathugun á hugsanlegum flutningi Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja. Mikilvægt er að afla frekari upplýsinga svo að allar forsendur sé teknar með í reikninginn. 

Í hagkvæmniathuguninni kemur m.a. fram að núverandi húsnæði Landhelgisgæslunnar sé óviðunandi og standist ekki öryggisstaðla. Þar kemur einnig fram að Gæslan hafi nú tvær þyrlur til umráða en þurfi að hafa fjórar til að uppfylla starfsskyldur sínar. Á Reykjavíkurflugvelli er ekki möguleiki á að Gæslan geti stækkað við núverandi húsnæði sitt. Horfa verður til framtíðar. Að okkar mati færi best ef Gæslan flytji til Suðurnesja. Það er skynsamlegt og rökrétt.

Samkvæmt hagkvæmniathuguninni eykst rekstrarkostnaður Gæslunnar til muna ef hún yrði staðsett á Suðurnesjum, eða um 700 milljónir kr. á ári. Þessa tölu drögum við stórlega í efa þar sem, ekki er lagt  mat á að með flutningunum mun rekstur og þjónusta gæslunnar aukast, styttra er á þjónustusvæði Gæslunnar frá Reykjanesbæ. Ekki er heldur lagt mat á að húsakostur sá er Landhelgisgæslunni stendur til boða er í raun eins og hannaður fyrir það hlutverk sem hún á að sinna.  Það hlutverk sem Landhelgisgæslan fékk frá Varnarmálastofnun og sinnir á Ásbrú, er einnig í uppnámi og hætta er á að þau störf sem þar eru flytjast til úr landi, sinni Landhelgisgæslan þeim ekki. 

Framsóknarmenn skora því á innanríkisráðherra að taka útréttri hönd Suðurnesjamanna og mynda starfshóp stjórnvalda og sveitarfélaga á Suðurnesjum sem fyrst til að allar hliðar málsins liggi ljósar fyrir áður en ákvörðun verði tekin um staðsetningu Landhelgisgæslunnar til framtíðar.

Við íbúar Suðurnesja bjóðum Landhelgisgæsluna velkomna á Ásbrú þar sem hún á heima þegar hún flyst.

Samþykkt á félagsfundi  Framsóknarfélags Reykjanesbæjar 30. apríl 2011

Merki: Ályktun
29. 5. 2010

Vilt þú vera leigjandi í eigin húsi?

Reykjanesbær hefur selt allar fasteignir sínar til Eignarhaldsfélags Fasteignar (EFF). Bærinn borgar nú 90 milljónir króna á MÁNUÐI í leigu. Eitt þúsund milljónir á ári! Þetta eru miklir peningar.

Er Fasteign gjaldþrota?
Meirihlutinn reynir nú í örvæntingu að sannfæra íbúa um að þátttaka bæjarins í EFF hafi verið gæfuspor, og vísar þar í skýrslur „óháðra“ aðila. Hvernig geta menn komist að slíkri niðurstöðu þegar forsendur liggja ekki fyrir? Enn hefur EFF ekki skilað ársreikningum fyrir árið 2009, en þeir áttu að liggja fyrir í apríl. Hvers vegna? Er eitthvað að fela? Hver er raunveruleg staða EFF? Sumir segja að félagið sé einskis virði. Að það sé tæknilega gjaldþrota. Ef svo er, þá á Reykjanesbær ekki neitt í EFF. Er það gæfuspor?

Sólpallur en ekkert hús
Þetta eru allt getgátur. Staðreyndin er hins vegar sú að Reykjanesbær á aðeins 10% í EFF en greiðir ríflega 40% af leigutekjum félagsins. Eigum lítið en borgum mest af öllum. Önnur staðreynd er sú að söluhagnaður af eignum bæjarins til EFF var aðeins að litlum hluta notaður til að greiðar niður skuldir bæjarins, eins og ætlunin var að gera. Meiriparturinn var notaður í framkvæmdir. Að mínu mati er það með öllu órökrétt að selja eignir sínar og eyða hagnaðinum í framkvæmdir. Svipað og ef ég myndi selja húsið mitt, leigja það af kaupandanum og nota söluandvirðið, til að búa til glæsilegan sólpall við húsið. Algerlega órökrétt!

Read More

27. 5. 2010

12 Góðar ástæður fyrir því að kjósa Framsókn

• Okkar stærsta mál fyrir þessar kosningar er aukið íbúalýðræði. Að íbúar geti kosið um stór mál. Einnig viljum við breyta reglum um bæjarstjórnarfundi að íbúar geti komið málum á dagskrá bæjarráðs eða bæjarstjórnar og haft þar málfrelsi og tillögurétt, en nú hafa íbúar einungis áheyrnarrétt. Okkur finnst mikilvægt að auka samvinnu í bæjarstjórn. Bæjarstjórn á að vinna saman eins og fjölskylda, þ.e. að málin séu leyst í sameiningu og hlustað sé á skoðanir allra. Einhliða ákvarðanataka er ekki góð.

• Frambjóðendur Framsóknar í Reykjanesbæ eru flestir nýir á þessum vettvangi. Við svöruðum kalli um endurnýjun og ákváðum að leggja okkar af mörkum til að bæta samfélagið okkar og koma með nýjar áherslur. Okkur finnst mikilvægt að bæjarfulltrúar setji sér siðareglur, þ.e. að þeir upplýsi um hagsmunatengsl sín.

• Hér eru tækifæri. Við munum beita okkur af fullum þunga fyrir því að atvinnuverkefni fari strax af stað. Atvinna eru mannréttindi. 

Read More

26. 5. 2010

Fundur með Sigmundi Davíð

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, verður með opinn fund í Framsóknarhúsinu, Hafnargötu 62, miðvikudaginn 26. maí klukkan 20.

Sigmundur mun tala um framtíðina, breytt stjórnmál og framtíðarlausnir fyrir heimilin og atvinnulífið.

Allir velkomnir.










25. 5. 2010

Áttavitinn: Atvinnumál

Atvinnusköpun fyrir iðnaðarmenn í atvinnuleit, t.d. að gera upp gömul hús sbr. Völundarverkefnið í Reykjavík. Fyrirmyndin að þessu verkefni er sótt til Svíþjóðar og er hugmyndin að skapa atvinnu fyrir iðnaðarmenn sem misst hafa vinnuna í kreppunni og nýta jafnframt starfskrafta þeirra til að varðveita gömul hús. Menn yrðu áfram á atvinnuleysisbótum en Reykjanesbær borgar svo umfram, þannig að þegar upp er staðið yrðu menn á taxtakaupi. Einnig væri hægt að fara í samstarf við iðnbrautir í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, á grundvelli þessa verkefnis. Það verður æ algengara að iðnnemar komast ekki á samning og ná ekki að klára sveinsprófið tímanlega, vegna samdráttar í byggingariðnaði. Með þessu verkefni gæfist þeim tækifæri á að komast á samning hjá meisturum og læra jafnframt gamalt handbragð. 

Veitum ungu fólki í  atvinnuleit tækifæri að vinna við tímabundin verkefni á vegum Reykjanesbæjar. Slík verkefni gætu t.d. verið að laga og hafa eftirlit með leiksvæðum, tína rusl á opnum svæðum, hreinsa fjörur, skógrækt, útbúa útivistarsvæði á Nikkel, gera skólagarða í Dalshverfi og leikvöll. Matjurtagarða í Grófinni og í Dalshverfi. Laga til og gera vistvænni gömlu leikvellina við Miðtún, Ásabraut og Þverholt. Lífga upp á skrúðgarðana okkar með meira skjóli og uppákomum, leiksýningum, skúlptúrum, tónleikum o.fl. (líka undir menningarmál).

Styðja við öll atvinnuskapandi verkefni sem eru í burðarliðnum, stór og smá, s.s. Helguvík, ECA, gagnaver, einkarekið sjúkrahús á Ásbrú, heilsu- og menningartengda ferðaþjónustu o.s.frv..

Styðja við uppbyggingu smærri fyrirtækja með því að hafa ráðgjafa í fullu starfi sem leiðbeinir þeim með styrkumsóknir, gerð viðskiptaáætlana, markaðsáætlana o.s.frv. Eins og vaxtasamningurinn gerir ráð fyrir.

Hér er stefnuskráin í heild.

24. 5. 2010

Áttavitinn: Stjórnsýsla

Stuðla að skilvirkri stjórnsýslu.

Gagnsæi í ráðningum á vegum bæjarins. Allar stöður auglýstar og ráðið út frá hæfileikum, menntun, reynslu og þekkingu.

Auka hagkvæmni og minnka yfirbyggingu í stjórnsýslu. Fara ofan í saumana á skipulagi stjórnsýslunnar og skoða möguleika á hagræðingu.

Að bæjarstjórn Reykjanesbæjar setji sér siðareglur. Í þeim kæmu fram hagsmunatengsl bæjarfulltrúa við tiltekin fyrirtæki og stofnanir, s.s. stjórnarseta í fyrirtækjum, skuldir, hlutabréfaeign o.s.frv. Reglurnar yrðu sambærilegar og siðareglur alþingismanna.

Hér er stefnuskráin í heild.

23. 5. 2010

Kristinn Þór talar um málefni Framsóknar í Reykjanesbæ. Atvinnu- og fjármál.

Deila